Æfingar

Æfingar

Lokaðar spurningar - Opnar spurningar

Reyndu að umorða spurningarnar þannig að þær verði opnar.

1. Hefurðu áhyggjur af áfengisneyslu þinni?

2. Viltu að ég hjálpi þér að draga úr áfengisneyslunni?

3. Nú ert þú orðin ófrísk og þá verðurðu að hætta að neyta áfengis, þú skilur það, ekki satt?

4. Veistu hvaða áhrif áfengið hefur á líkamann?

5. Það er mjög kostnaðarsamt að drekka svona mikið eins og þú gerir. Geturðu ekki eytt peningunum í eitthvað betra?

6. Finnst þér áfengisneysla þín eðlileg?

7. Ef þú heldur áfram að drekka jafn mikið og þú gerir nú mun lifrin ekki endast mörg ár í viðbót. Finnst þér drykkjan þess virði?

 


Efni Lokuð spurning

Opin spurning


Neikvæðar afleiðingar af áhættunotkun/skaðlegri neyslu áfengis.




Áhyggjur vegna neikvæðra afleiðinga af skaðlegri/áhættunotkun áfengis.




Að breyta áfengisvenjunum




Trúin á getuna til að breyta áfengisvenjunum





 

Að breyta áfengisvenjunum

Trúin á getuna til að breyta áfengisvenjunum

Hvernig bregstu við setningum af þessu tagi ef viðmælandinn er á báðum áttum?
Skrifaðu hjá þér tillögur að svari. Notaðu það sem þú hefur lært um áhugahvetjandi samtalstækni.

1. Ég geri mér grein fyrir því að ég ætti að draga úr áfengisneyslunni en ég veit ekki hvort það er þess virði.

2. Ég gæti dregið úr áfengisneyslunni um nokkurn veginn helming eins og við töluðum um en líður mér eitthvað betur við það í raun og veru?

3. Ég hugsa að það væri gott fyrir mig að draga úr áfengisneyslunni. Það er augljóst að líkaminn hefur ekki gott af mikilli drykkju en ég er ekki alveg viss um að ég vilji það, maður lifir nú bara einu sinni!

4. Þetta þýðir að ég get aldrei framar verið með í föstudagsbjórnum – kvöldstund í vinnunni – hvað ætli vinnufélagar mínir segi um það? En ég verð að láta mér detta eitthvað annað í hug.

5. Já, ég veit hvað ég á að gera en það er svo hrikalega leiðinlegt, sérstaklega nú þegar það er vor í lofti.

Hópæfing

Viðhorf og skoðanir til áfengis
Mínar eigin hugsanir, tilfinningar og reynsla af áfengi

Tími 20-60 mínútur 

1. Skiptið ykkur í tveggja manna hópa og einn þriggja manna ef einhver mætir afgangi.

2. Nú segir annar aðilinn í hverjum hópi frá því sem hann vill deila með viðtalsfélaga sínum, hugsunum sínum, tilfinningum og reynslu af áfengi. Þetta gætu til dæmis verið svör við eftirfarandi spurningum:
Hvenær fékkstu þér fyrsta sopann? Hvenær sástu fyrst einhvern undir áhrifum? Hver er skemmtilegasta og erfiðasta minningin í tengslum við áfengi?
Hvernig tilfinningar vekur hún með þér líkamlega og andlega?
Skiptist helst á um að segja frá þannig að annað ykkar segi frá helminginn af tímanum á meðan hitt er í hlutverki hlustanda og svo öfugt.
Fáið ykkur gjarnan göngutúr meðan á samtalinu stendur!

3. Hópunum er safnað saman. Þeir sem vilja geta deilt hugleiðingum sínum með hinum en enginn er skyldaður til þess.  Gott er að fá einhvern í hópnum til að fylgjast með tímanum.

4. Ljúkið æfingunni á því að tveir og tveir – annaðhvort sömu samtalsfélagar eða ný pör – hugleiða hvernig það sem þið hafið rætt um getur haft áhrif á samtöl við skjólstæðinga ykkar og á hvern hátt þetta getur auðveldað samtöl í framtíðinni.

Dæmi um áhugahvetjandi samtal (Word)




 

Senda grein


Æfingar

Æfingar - viðbótarefni

Hér er e.t.v. myndefni


Útlit síðu:



Landspitali Landlæknir Heilsugæslan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica