Sjálfspróf

Opnar og lokaðar spurningar

Eru eftirfarandi spurningar opnar eða lokaðar? Merktu við í viðeigandi reiti.

1. Hvar ertu fædd/ur?

  • Rétt svar: Lokuð,

2. Hver er ástæðan fyrir komu þinni hingað í dag?

  • Rétt svar: Opin,

3. Er ekki mikilvægt fyrir þig að hafa einhvern tilgang í lífinu?

  • Rétt svar: Lokuð,

4. Hvernig hefur þú yfirstigið mótlæti í lífi þínu hingað til?

  • Rétt svar: Opin,

5. Að hvaða leyti er sykursýki þín vandamál?

  • Rétt svar: Opin,

6. Skiptir heilsan þig einhverju máli?

  • Rétt svar: Lokuð,

7. Af hverju ertu ekki þegar byrjuð/byrjaður?

  • Rétt svar: Opin.

8. Er þetta opin spurning?

  • Rétt svar: Lokuð,

Breyttu eftirfarandi spurningum svo að þær verði opnar.

Ýttu á Svara þegar þú hefur lokið við að svara spurningunum. Þá færðu viðbrögð við svörunum. Ef um er að ræða spurningar sem gefa kost á mismunandi svörum þá eru réttu svörin merkt með grænu og þú færð eitt stig fyrir hvert rétt svar. Ef öll svörin eru rétt færðu 8 stig. Þar sem fleiri en einn möguleiki er við liðum 9-12 er engin endurgjöf.

Stig hegðunarbreytinga

Á hvaða stigi finnst þér að eftirfarandi spurningar henti?

Satt eða ósatt?

Hvenær heldurðu að þú sért tilbúin/n að ganga í gegnum breytinguna? Breyta um lífsstíl?

  • Spurningin hentar á stiginu Tilbúin/n eða Aðgerð

2. Hvað veistu um áhrif áfengis á heilsuna?

  • Spurningin hentar á stiginu Ekki tilbúin/n eða Óákveðin/n

3. Við hvaða aðstæður telurðu að það yrði sérstaklega erfitt að vera án áfengis? Hvað gætirðu þá gert í staðinn?

  • Spurningin hentar á stiginu Aðgerð

4. Eru einhverjar aðstæður það varasamar að hætta sé á því að þú fallir?

  • Spurningin hentar á stiginu Aðgerð eða Viðhaldsástand

5. Viltu að ég segi þér frá því hvað getur komið að gagni þegar maður breytir hegðun? T.d. að draga úr áfengisdrykkju

  • Spurningin hentar á stiginu Tilbúin/n

6. Á kvarðanum 0-10, þar sem 0 þýðir alls ekki mikilvægt og 10 þýðir mjög mikilvægt, hve mikilvægt finnst þér þá að draga úr áfengisneyslu þinni?

  • Spurningin hentar á stiginu Óákveðin/n

7. Það er gott að undirbúa sig þegar maður ætlar að breyta venjum sínum. Hvað þyrftir þú að gera?

  • Spurningin hentar á stiginu Tilbúin/n eða Aðgerð

8. Hvað heldurðu að verði erfitt? Hvernig gætirðu leyst það?

  • Spurningin hentar á stiginu Tilbúin/n eða Aðgerð

9. Hver yrði ávinningur þinn af því að draga úr áfengisneyslunni?

  • Spurningin hentar á stiginu Óákveðin/n eða Ekki tilbúin/n

10. Hvenær heldurðu að þú sért tilbúin/n að ganga í gegnum breytinguna? Breyta um lífsstíl?

  • Spurningin hentar á stiginu Viðhaldsástand

Ýttu á Svara þegar þú hefur lokið við að svara spurningunum. Þá færðu viðbrögð við svörum þínum. Réttu svörin eru merkt með grænu.


Útlit síðu:



Landspitali Landlæknir Heilsugæslan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica