Áhugahvöt

Áhugahvöt

 

Styrkur innri áhugahvatar hefur áhrif á viljann til breytinga. Þetta snýst um að gera eitthvað uppbyggilegt sjálfs sín vegna. Hægt er að efla áhugahvöt skjólstæðingsins með því að hvetja hann til þess að taka eigin ákvarðanir.

Samtal um hegðunarbreytingar

Mikilvægt er að fá skjólstæðing til að tala um hvers vegna og hvernig hann vill breyta hegðun sinni. Í samtalinu er það hann eða hún sem á að tala mest. Því meira sem skjólstæðingarnir tala um að breyta hegðun sinni þeim mun betra. Með virkri hlustun örvar maður áhugahvöt skjólstæðingsins.

Ef viðkomandi fer að „andmæla“, sýnir viðnám, er það merki um að fagaðilinn hafi sýnt stýrandi viðhorf og fagaðilinn sé kominn á undan honum í ferlinu. Þá er hætta á hann sýni viðnám. Skjólstæðingurinn getur fengið á tilfinninguna að hann sé misheppnaður eða eigi sök á einhverju.

Áhugahvötin eykst þegar viðmælandinn gefur skjólstæðingnum færi á að eiga frumkvæðið.

Tvær góðar spurningar sem ýta í sameiningu undir áhugahvöt til breytinga á hegðun:

1) Ávinningurinn af breytingunni

Til að ýta undir vilja skjólstæðingsins til breyta hegðun getur fagaðilinn beðið hann um að meta sjálfan hve áhugasamur hann er um að breyta um hegðun með eftirfarandi spurningu: Á kvarðanum 0-10, þar sem 0 þýðir alls ekki mikilvægt og 10 þýðir mjög mikilvægt, hve mikilvægt er það fyrir þig að breyta um hegðun, t.d. hætta að reykja?

Svar skjólstæðingsins gefur góða vísbendingu um hvernig samtalið getur haldið áfram. Ef svar hans er til dæmis samkvæmt 4 á skalanum hefur hann lítinn vilja til að hætta. Hann hefur ekki komið auga á neina góða ástæðu til þess að hætta. Þá þarf að spyrja hvers vegna hans hafi valið einmitt þessa tölu en ekki lægri tölu. Ef hann svarar með hárri tölu er hægt að halda áfram að efla trú hans á eigin getu.

2) Trú á eigin getu

Trú á eigin getu til að breyta hegðun byggist á ýmsu, meðal annars hvernig manni hefur gengið hingað til við svipaðar aðstæður, hvernig öðrum sem líkjast manni hefur gengið, hvort maður veit hvað á að gera og stuðningi umhverfisins.

Góð leið til að halda áfram samtalinu um hvað hægt sé að gera er að biðja skjólstæðinginn sjálfan að meta trú sína á hvernig honum muni ganga að breyta hegðun sinni.

Spurning: Á kvarðanum 0-10, þar sem 0 þýðir alls engin geta og 10 þýðir að þú munir fullkomlega geta þetta, hve mikil er geta þín til að breyta hegðun ef þú vildir?

0____________________________________________10

Mælikvarði á áhugahvöt - skjal til útprentunar

Ef skjólstæðingurinn svarar með tölu sem er hærri en 0 á skalanum má biðja hann að segja hvers vegna hann velji einmitt þessa tölu. Því betur sem tekst að örva hann til að greina frá getu sinni þess meiri verður trúin á eigin getu. Trú skjólstæðingsins á eigin getu eykst enn frekar ef hann er spurður hvort hann viti um eitthvað í eigin fari sem getur hækkað töluna.

Einnig er mikilvægt að ræða um erfiðleika og lausnir á þeim. Ef ekki er reynt að takast á við erfiðleikana getur trúin á eigin getu minnkað.

Tvíbendni

Oft er skjólstæðingurinn á báðum áttum í viðhorfi sínu til þess að breyta hegðun. Skjólstæðingur, sem reykir eða neytir áfengis óhóflega, getur fundið að hann vill hvort tveggja í senn - hætta og halda áfram. Ástæðan er óöryggi þar sem honum finnst bæði kostir  og gallar við hegðun sína. Allir reykingamenn vita að það er heilsuspillandi að halda áfram að reykja. En þeim getur fundist erfitt að hætta þar sem þeir finna að þeir bæði róast og örvast af þessari hegðun sinni.

Hlutverk fagaðilans er að hjálpa skjólstæðingnum að orða sjálfur rökin með og á móti því að halda tiltekinni hegðun áfram. Þegar hann skynjar að ávinningurinn af því að hætta, eða breyta, er meiri en hann telur að tapið af því muni verða eru meiri líkur á að hann reyni að hætta.

Tvístígandi viðhorf – matstæki

Hér er sagt frá notadrjúgu matstæki sem beita má í samtalinu til að greina hvernig skjólstæðingurinn metur hegðun sína. Maður skiptir blaði í fjóra reiti og skráir þar kostina og ókostina við að breyta hegðun sinni (t.d. að hætta að reykja) og kostina og ókostina við að halda hegðuninni áfram (t.d. að halda áfram að reykja).

Kostir og ókostir við að hætta:

 

MI_mynd2_bls._13

Tvíbendniskjalið til útprentunar

Það ýtir undir áhugahvötina til að breyta hegðun skynji skjólstæðingurinn ósamræmið á milli þess sem hann vill gera og því sem hann gerir. Með því að spyrja eins og hér er lagt til er hægt að hjálpa honum að átta sig á ósamræminu.

 

Senda grein


Áhugahvöt

Áhugahvöt - annað efni

Tvíbendniskjal fyrir tóbak - til útprentunar

Tvíbendniskjal fyrir áfengi - til útprentunar

Mælikvarði á áhugahvöt - til útprentunar

 

 

 

MI-mynd-bls.-5

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

MI_mynd_bls._12-

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

MI_mynd_bls_25


Útlit síðu:



Lýðheilsustöð Landspitali Landlæknir Heilsugæslan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica