Hlustun

Hlustun

Mikilvægt er að hlusta af athygli á það sem viðkomandi segir, án þess að grípa fram í fyrir honum, til þess að skilja hvaða augum hann lítur aðstæður sínar.

Með því endursegja gefur fagaðilinn til kynna að hann reyni að skilja og að það sé skjólstæðingurinn sem stjórni samtalinu. Skjólstæðingurinn fær tækifæri til að staldra við og hugsa sig um. Endursögnin gerir honum kleift að fylgjast með því að fagaðilinn hafi í raun og veru fengið rétta mynd af aðstæðunum. Hafi fagaðilinn misskilið eitthvað þá leiðréttir skjólstæðingurinn misskilninginn.

Það má endursegja á ýmsa vegu:

• Endurtaka orðrétt það sem viðkomandi sagði.

• Umorða það sem hann sagði.

• Orða tilfinninguna, skoðunina eða gildin sem liggja á bak við það sem hann sagði.

Í „Dæmunum“ eru ýmsar útgáfur af þessu.

(Tóbak - kafli með dæmum)

Samhygð

Samhygð felur í sér að fagaðili reynir að skilja og virða skjólstæðinginn burtséð frá því sem hann segir. Til þess að geta það þarf fagaðilinn að bægja burt eigin fordómum.

„Til að hjálpa öðrum þarf ég vissulega að skilja meira en hann skilur en fyrst og fremst skilja það sem hann skilur,“ segir danski heimspekingurinn Kierkegaard í þekktu ljóði.

Ef skjólstæðingnum finnst fagaðilinn hlusta á hann af athygli og virða hann veitir það honum jákvæða örvun og stuðning. Það myndar grunn að góðum samræðum og eykur líkurnar á að hann vilji koma aftur til samræðna.

Að komast áfram

Samtalið fer auðveldlega að snúast um önnur efni en upphaflega var ætlað. Þetta getur verið í fyrsta sinn sem einhver veitir vandamáli skjólstæðingsins athygli. Það getur verið erfitt að tala um og ákveða að breyta lífsstíl sínum. Þá er mikilvægt að fagaðilinn sé athugull og gæti þess að samtalið fari ekki út af réttri braut. Góð leið til að halda einbeitingunni er að reyna fljótlega að meta á hvaða stigi viðkomandi er, þ.e. hve viljinn er mikill, og hlusta eftir því hvað hann vill. Þá veit maður hvar þungamiðja samtalsins ætti að vera.

Að ljúka samtalinu

Áður en farið er að ræða um tiltekinn vanda er hægt að gefa til kynna hve lengi á að tala um tiltekið efni.– Eigum við að taka nokkrar mínútur í að tala um ...? Þannig er hægt að ákveða tímann sem á að fara í að tala um vandann og síðan horfið frá því umræðuefni. skjólstæðingurinn þarf þá ekki að áhyggjur af því að fagaðilinn taki þann þráð upp aftur seinna í samtalinu. Gott getur verið í lok samtalsins að taka saman það sem var rætt um. Þannig er einnig gefið til kynna að samtalinu sé að ljúka.

Senda grein


Hlustun

Hlustun - myndefni

 

 

 

 

 

 

MI_mynd_bls_18

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 MI_mynd_bls_19-copy

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Útlit síðu:



Lýðheilsustöð Landspitali Landlæknir Heilsugæslan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica