Um fjals.is
Vefsíðan er unnin af Lýðheilsustöð í samráði við Landlæknisembættið, Landspítala-háskóla-sjúkrahús og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-ins. Efni síðunnar er fyrst og fremst ætlað þeim sem þegar eru starfandi innan heilbrigðis-kerfisins en getur einnig nýst öðru fagfólki vel. Vefsíðunni er jafnframt ætlað að styðja við notkun klínískra leiðbeininga um tóbaks- og áfengismeðferð í heilsugæslunni.
Á sérstökum síðum er efni um meðferð við tóbaksfíkn og óhóflegri áfengisneyslu. Þar er ýmislegt ítarefni, gögn og fræðsluefni fyrir skjólstæðinga, sem og sjálfspróf og æfingar sem nýta má til að efla færni í áhugahvetjandi samtali. Stuðst er við fræðsluefni af vefsíðunum SOMRA.se og SOMT.se með þeirra leyfi.




