Spurningar
Heilbrigðisstarfsmaður og annað fagfólk verður að vera óhrætt við að prófa samtalstæknina í viðtölum við skjólstæðinga sína. Best er að byrja á opnum spurningum, til dæmis: ,,Hvaða augum lítur þú ...”
Gott er að æfa sig á nokkrum dæmum sem finna má undir flipanum Æfingar á undirsíðunum um tóbak og áfengi (eða með því að smella á tenglana hér) og góða raun gefur að æfa sig með námsfélögum sínum eða samstarfsfélögum. Dæmi um hlutverkaverkefni er einnig að finna undir æfingaflipanum.
Í áhugahvetjandi samtali, er mikilvægt að spyrja opinna spurninga, það er að segja spurninga sem ekki er hægt að svara með já eða nei. Opnar spurningar hefjast til dæmis á: hvað, hvernig, segðu mér frá. Að spyrja opinna spurninga gefur skjólstæðingnum til kynna að fagaðilinn sé opinn fyrir hvaða svari sem er. Skjólstæðingnum finnst hann ekki „verða“ að svara á einhvern ákveðinn hátt. Forðast ber spurningar sem innihalda hvers vegna – þær geta virst ásakandi.
Opin spurning krefst oft aðdraganda. Dæmi:
Margir sjá bæði kosti og galla við það að reykja/drekka. Hvernig lítur þú á málið?
Spurningar sem kalla á íhugun. Oft er árangursríkt að spyrja skjólstæðinginn spurninga sem fá hann til að velta málinu fyrir sér og horfa á það frá öðru sjónarhorni, einkum ef spurningarnar eru orðaðar þannig að hann kemur sjálfur með svarið. Dæmi: ,,Þér finnst reykingar/áfengisdrykkja veita þér vellíðan. Er samt sem áður eitthvað sem mælir með því að hætta?”
Með opnum spurningum er unnt að eiga samtal án skilyrða og svör viðkomandi fela í sér mynd hans af eigin aðstæðum. Þannig er auðveldara að halda samtalinu áfram en ef spurningin býður upp á takmörkuð svör.





