Tóbak

Meðferð við tóbaksfíkn

Þessi hluti Frjáls.is fjallar um meðferð við tóbaksfíkn.

Dauðsföll af völdum tóbaksneyslu er sú dánarorsök í heiminum sem auðveldlega má koma í veg fyrir. Þótt dauðsföll af völdum tóbaksneyslu séu sjaldnast fyrsta frétt fjölmiðlanna kostar það árlega meira en 5 milljónir manna lífið – fleiri en berklar, alnæmi og malaría til samans.

Heilbrigðisstarfsfólk gegnir veigamiklu hlutverki í tóbaksvörnum því einn þáttur tóbaksvarna er að hvetja þá sem nota tóbak til að hætta því og aðstoða þá til þess. Til eru gagnreynd meðferðarúrræði við tóbaksfíkn og þau ættu að vera hluti af annarri hefðbundinni meðferð skjólstæðinga til þess bæði að auka batalíkur skjólstæðinganna og bæta almenna líðan þeirra.

(Sjá klínískar leiðbeiningar frá landlækni)

Niðurstöður rannsókna sýna að langflesta þeirra sem reykja langar til að hætta en gengur brösuglega að losa sig undan tóbaksfíkninni á eigin spýtur. Heilbrigðisstarfsfólk er í framvarðarstöðu til að hjálpa fólki að hætta með því að spyrja tveggja grundvallarspurninga:

  1. Notarðu tóbak af einhverju tagi?
  2. Viltu hætta?

Geri heilbrigðisstarfsfólk það að vana sínum að spyrja alla skjólstæðingana sína í hvert sinn, sem það tekur á móti þeim um tóbaksvenjur þeirra, þá sýnir það að málefnið er tekið alvarlega innan heilbrigðisþjónustunnar. Stutt ráðgjöf, sem tekur innan við fimm mínútur, rúmast yfirleitt innan hins venjulega samtals við skjólstæðinginn. Talið er að svo einföld aðgerð leiði til þess að 2-3% reykingafólks hætti að reykja. Sé aðgerðunum fylgt eftir með lengri ráðgjöf og meðferð fjölgar þeim margfalt sem hætta að nota tóbak. Með því að skrá tóbaksnotkun er hægt að fylgjast með því hvernig fólki gengur að hætta í öðrum heimsóknum til heilbrigðiskerfisins.

Sjúkdómsgreining: Tóbaksnotkun (F 17.2)

Meðferð við tóbaksfíkn felur í sér samtalsmeðferð, ráðgjöf og jafnvel lyfjameðferð. Mikilvægt er að bjóða öllum, sem nota tóbak og vilja hætta, stuðning og aðstoð við að hætta notkun, hvort heldur sem hlutaðeigandi heilbrigðisstarfsmaður sinnir þeirri þjónustu sjálfur eða vísar til annarra aðila á því sviði, s.s. Ráðgjöf í reykbindindi, s: 800 6030.

Aðalkennsluefnið á síðunni er undir fræðsluefni.

Senda grein


Tóbak

Verklag í tóbaksvörnum

Hér er flæðirit sem sýnir verklag í tóbaksvörnum á heilbrigðisstofnunum, sem hægt er að prenta út. Einnig eru í því tenglar á nokkrum stöðum og með því að smella á þá er hægt að fá nánari upplýsingar um viðkomandi feril.


samtal samtal

 

 

 

 

 


Útlit síðu:



Lýðheilsustöð Landspitali Landlæknir Heilsugæslan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica