Viðnám

Viðnám

Byrji maður að rökræða við skjólstæðinginn getur maður auðveldlega lent í vandræðum.

Erfitt getur verið að halda samtalinu áfram og viðkomandi bregst hugsanlega við með því að sýna viðnám, til dæmis pirring eða áhugaleysi. Viðnámið skapast oft af því að viðmælandinn hefur ekki sýnt skjólstæðingnum næga nærgætni og ekki hlustað af nógu mikilli athygli.

Ef fagaðilinn leggur áherslu á atriði sem kalla fram viðnám er hætt við að skjólstæðingurinn fari að verja sig í stað þess að tala um það sem samtalið á í raun og veru að snúast um.

Við þannig aðstæður er mikilvægt fyrir fagaðilann að draga í land og að líta á viðnám skjólstæðingsins sem merki um að hann þurfi að breyta framkomu sinni, reyna virka hlustun eða velja aðra leið.

Orð eins og þú skalt, ættir og verður eru þvingandi orð sem iðulega kalla fram viðnám. Það verður að muna að skjólstæðingurinn forgangsraðar ekki alltaf eins og fagaðilanum þykir heppilegast. Fagaðilinn verður að líta á skjólstæðinginn sem jafningja sem hefur rétt á sínu eigin gildismati.

 

 

 

 

Senda grein


Viðnám

Viðnám - myndefni

 

MI_mynd_bls_15

 

 

 

 

 

 

 

 

MI_mynd_bls_15-

 

 

 


Útlit síðu:



Lýðheilsustöð Landspitali Landlæknir Heilsugæslan

Þetta vefsvæði byggir á Eplica